Stórsveitin Thundervolt frá Þýskalandi er væntanleg til landsins snemma á næsta ári. Mun sveitin leika á tvennum tónleikum í sal Karlakórs Reykjavíkur, Ými.
Að sögn eins aðstandenda tónleikanna, Snæbjörns Falk, er þetta "...langþráður draumur minn sem loks er að rætast. Ég eignaðist fyrstu plötuna þeirra 'Bangin' the smurfs' þegar ég var smá patti og hef ekki verið samur síðan."
Thundervolt er án efa ein fremsta þungarokkshljómsveit heims og nýtur gríðarlegra vinsælda í austur-evrópu. Sveitin er nú skipuð upprunalegum meðlimum, sem stofnuðu sveitina 1977, en ekki er langt síðan trommuleikarinn Udolf Swatzmüller kom í leitirnar eftir að hafa verið talinn af í 15 ár. Í stuttu samtali við Baggalút sagði Tony Ztarblaster, söngvari: "Við höfum við aldrei verið betri - og nýja efnið sannar það bara enn og aftur að 'METAL WILL NEVER DIE'
Mikill fengur að fá þessa hressu kappa hingað á klakann, en heimsókn þeirra er liður í kynningu á nýrri breiðskífu, 'Thunder Prezzure' sem kemur út á næstu vikum.
Til sölu
vel með farnir, lítið notaðir sjömílnaskór. Á sama stað fást gefins óskasteinn og fjöregg. Afgreiðsla vísar á.
Ég sé að fullháttvirtur forseti hins háa Alþingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurðarveisluna sem hann hélt á Völlunum að viðstöddu fámenni í gær.
„Forseti Alþingis harmar að heimsókn danska þingforsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðarhöldin og leyfir sér að trúa því að það sé minnihlutasjónarmið að viðeigandi sé að sýna danska þingforsetanum óvirðingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóðþingsins og dönsku þjóðarinnar.“ — segir forseti.
Ég mótmæli herra forseti.
Þessi vanhugsaða og alls óvelkomna heimsókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjölmilljónapartíið þitt. Heiðursgesturinn flóttalegi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðanamyrka skugga á hátíðahöldin og eyðileggja þau gersamlega.
Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa útdönkuðu rasistapíu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þingforseta yfirhöfuð.
Það er nefnilega míkróminnihlutasjónarmið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauðklædda rasista og leiða til hásætis á hátíðarþingfundi á sjálfu Lögbergi. Og það að gera lítið úr gagnrýni á þetta skipulagsslys er ekkert annað ómerkilegt yfirklór og eftirámjálm.
Svo eiga menn bara að drullufrussfretast til að biðjast afsökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðlilegum viðbrögðum við þessum skammarlega undirlægju– og druslugunguhætti.
Góðar stundir.
ÁTVR hefur stórlækkað verð á flestum tegundum áfengis í verslunum sínum. Lækkunin er tilkomin vegna innflutnings ÁTVR á niðursoðnu áfengi frá Miðausturlöndum. „Eins og menn vita er niðursuðuvara yfirleitt ódýrari en fersk, við gerðum góðan díl“, sagði forstjóri ÁTVR. „Við bjóðum í byrjun upp á niðursoðið vodka og rauðvín en hyggjumst einnig hafa á boðstólnum líkjöra og jafnvel bjór, sem reyndar er í dósum fyrir, ekki niðursuðudósum samt“. Talið er að lækkunin nemi allt að 80%. Einnig er búist við að sala hefjist innan tíðar á ódýrum vakúmpökkuðum sígarettum og vindlum.
Hvítþvottur
Nærðu ekki blóði hinna saklausu úr jakkafötunum? Láttu okkur um að hvítþvo mannorð þitt.
Þvottahús Ming Li Fu
Herbergi
45 fm til leigu með öllum þægindum, þ.m.t. salerni. Hentugt fyrir þingmann. A.v.á.
Jarðarbúar ganga að kjörborðinu í dag í fimmtíuogfimmþúsundtvöhundruðogþriðju vetrarbrautarstjórnarkosningunum. Búist er við spennandi kosningum, en meðal annars er tekist á …
Hópur misyndismanna sem hugðist ræna skákmanninum Bobby Fischer var í gærkvöldi stöðvaður. Hópurinn samanstóð af nokkrum blóðþyrstum Gyðingum, með þá Woody …
Búist er við miklum fjölda fólks á Hvannadalshnúk um hvítasunnuhelgina og hefur þegar myndast löng biðröð við rætur hnúksins. Að …
Hjónin Solveig Thors og Unnar Scheving unnu í gær hinn eftirsótta Hermannsbikar á íslensku afkvæmasýningunni í Valsheimilinu. Bikarinn er veittur fyrir …
Nokkuð hefur borið á því undanfarna daga að unnin hafi verið skemmdarverk á vef Baggalúts, nánar tiltekið gestabók. Í ljósi …
Ný samtök fólks með eitthvað fast í tönnunum voru formlega stofnuð í dag að viðstöddu fjölmenni. „Já það var sannarlega kominn …
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna efnir til glímukeppni næstkomandi föstudag. Munu þar mætast kempurnar Magnús 'Þór' Gylfason og Þórlindur 'Títan' Kjartansson, …
Samkvæmt heimildum Baggalúts er Geir Haarde, fyrrum formaður, búinn að 'adda' Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, sem 'vini' á samskiptasíðunni Facebook. Ekki er …
Svavari Sæbertssyni mjólkurfræðingi, brá heldur betur í brún í gærkvöldi þegar hann uppgötvaði sér til hrellingar að það var allt …